Persónuverndarstefna
Síðast uppfært: 7. júní 2026
Þessi persónuverndarstefna lýsir því hvaða upplýsingum vefurinn netbokhald.is safnar, hvernig þær eru notaðar og með hverjum þeim er deilt. Ábyrgðaraðili er Netbókhald ehf. Hægt er að hafa samband vegna persónuverndarmála í gegnum netbokhald@netbokhald.is.
1. Upplýsingar sem við söfnum
Vafurgögn og mælingar
Þegar þú heimsækir vefinn er sjálfkrafa safnað tæknilegum upplýsingum á borð við IP-tölu, gerð vafra og tækis, hvaða síður eru skoðaðar og hvaðan þú komst inn á vefinn (t.d. af auglýsingu eða leitarvél). Þessar upplýsingar eru notaðar til að skilja notkun vefsins og mæla árangur markaðssetningar.
Upplýsingar sem þú gefur sjálf/ur
Ef þú skráir þig í prufuáskrift eða pantar þjónustu safnar skráningarformið kennitölu rekstraraðila, kennitölu forsvarsmanns og netfangi. Þessar upplýsingar eru nauðsynlegar til að stofna aðgang og veita þjónustuna. Nafn og heimilisfang eru sótt úr þjóðskrá út frá kennitölu.
2. Vefkökur (cookies) og þriðju aðilar
Vefurinn notar vefkökur og hleður efni frá þriðju aðilum. Þessir aðilar geta sett eigin vefkökur og séð IP-tölu þína:
- Google Analytics — vefgreining (mælir umferð og hegðun á vefnum).
- Meta Pixel (Facebook) — mæling á árangri auglýsinga og endurmarkaðssetning. Gögnum er deilt með Meta Platforms.
- Google Ads — mæling á árangri Google-auglýsinga (smellir og umbreytingar).
- Google Fonts og efnisveitur (CDN) — leturgerðir og vefþættir; IP-tala sést af þessum þjónustum.
- YouTube — innfelld kennslumyndbönd á aðstoðarsíðum (í persónuverndarham, youtube-nocookie).
Þú getur stýrt eða hafnað vefkökum í stillingum vafrans þíns. Athugaðu að það getur haft áhrif á virkni vefsins.
3. Hvernig upplýsingarnar eru notaðar
- Til að reka og bæta vefinn og þjónustuna.
- Til að stofna og halda utan um aðgang að Netbókhaldi.
- Til að mæla og bæta árangur markaðssetningar og auglýsinga.
- Til að hafa samband við þig vegna fyrirspurna eða skráningar.
4. Geymsla og öryggi
Upplýsingar eru geymdar á öruggum þjónum og einungis aðgengilegar starfsfólki Netbókhalds eftir þörfum. Skráningarupplýsingar eru geymdar á meðan þörf er á til að veita þjónustuna og uppfylla lagaskyldur (m.a. bókhalds- og skattalög).
5. Réttindi þín
Samkvæmt persónuverndarlögum (sbr. lög nr. 90/2018 og almennu persónuverndarreglugerðina, GDPR) átt þú rétt á að óska eftir aðgangi að upplýsingum um þig, leiðréttingu þeirra eða eyðingu, og að andmæla vinnslu. Hægt er að senda slíkar beiðnir á netbokhald@netbokhald.is. Þú átt einnig rétt á að senda kvörtun til Persónuverndar (personuvernd.is).
6. Breytingar á stefnunni
Við getum uppfært þessa stefnu eftir því sem þjónustan þróast. Nýjasta útgáfan er alltaf aðgengileg á þessari síðu með dagsetningu síðustu uppfærslu efst.
Hafa samband
Netbókhald ehf.
Netfang: netbokhald@netbokhald.is
Sími: 533 2090
